Systragil
Tjaldsvæðið í Systragili er mjög skemmtilegt. Gott skjól er á svæðinu, mikið er af trjám allt í kringum tjaldsvæðið sem veitir gott skjól. Sundlaug er á Illugastöðum.
Tjaldsvæðið í Systragili er með rafmagni, en eins og annarsstaðar er ekki endalaust framboð á rafmagnstenglum. Ekki eru sérstök stæði fyrir húsbíla, þarna eru bara allir jafnir, fyrstur kemur fyrstur fær. Á svæðinu eru upphituð salerni með lýsingu. Sturtur eru til staðar gegn gjaldi. Töluvert er af merktum gönguleiðum á svæðinu. Fnjóskáin rennur við túnfót tjaldsvæðisins.
Í nálægð við Systragil er enginn veitingastaður né verslun. Næsta verslun og bensín afgreiðsla er á Akureyri.
– Salerni
– Kalt vatn
– Heitt vatn
– Sturta
– Leiksvæði
– Hundar í taumi
– Gönguleiðir
– Rafmagn
– Losun